Hópnámskeið
Hægt er að fá einkanámskeið fyrir hópa, og þá er hægt að velja dagsetningu í samráði við starfsmann búðarinnar.
Lágmarksfjöldi er 6 eða fleiri og hafa þessi námskeið til dæmis verið mjög vinsæl fyrir saumaklúbba og starfsmannafélög.
Námskeiðið kostar 2.900 kr. á mann og er öll kennsla, bæklingur fyrir byrjendur, efni í eina síðu og aðgangur að tækjum og tólum innifalin í því. Sé greitt fyrirfram fyrir allan hópinn er verðið 2.500 kr. á mann.